Blogg í tilefni dagsins
Humm svo mikið búið að ske síðan ég bloggaði seinast en ég er bara að pæla að gera einhverja púnta um það. En ég man ekki hvenar ég bloggaði seinast þannig að það getur komið eitthvað sem ég er búin að segja ykkur...
- Tóti fór til Svíþjóðar, og ég sakna hans svoo mikið

- Rósa kom í heimsókn til mín og Ómar líka
- Afi dó 26 júlí

- Dekurdagur hjá okkur stelpunum í vinnunni.
- Ella fór til Bandaríkjana
- Helga kom til mín að kveðja mig og hun fór til Svíþjóðar og verður þar í ca 3 mánuði
sakna þín strax - Verslunnarmannahelgin er á enda og hún var ekki eins skemmtileg og ég var búin að hugsa mér hana.
- Jarðaförin hans afa var í dag

- Vika á morgun þanngað til að ég fer til Svíden

- 5 vinnudagar eftir þanngað til ég fer út
- Er að fara á hestbak um helgina og á eftir að gera mig að algjöru fífli, en bara gaman af því.
- Fer í lagfæringu eftir viku
- Eftir að pakka niður
- Gisti hjá systur minni eftir viku og hun skutlar mér útá flugvöll um morgunin dagin eftir (16 ágúst)
Held að þetta sé orðið gott og ég þurfi ekki að blogga strax aftur því þið vitið hvernig dagskráin er hjá mér næstu daga. En er eitthvað svo slöpp og held að ég ætli bara að fara að sofa.
Later!![]()
Er til meiri snilld?? Nei hélt ekki :)
Námskeið fyrir karla!!!
AÐEINS FYRIR KARLA
Athugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að
aðeins átta geta sótt hvert námskeið
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
FYRRI DAGUR:
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT
Skref fyrir skref með glærusýningu
KLÓSETTRÚLLUR - VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM?
Hringborðsumræður
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA
SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður - nokkrir sérfræðingar
AÐ TAPA GETUNNI
Að missa fjarstýringuna til makans - Stuðningshópar
LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess
að snúa húsinu við gargandi - Opin umræða
SEINNI DAGUR
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT
HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT
AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR
Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA
Fyrirlestur og hlutverkaleikir
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR
Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR
OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ
AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR!
Einstaklingsráðgjöf og samtöl
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar
Hvar fær maður svona námskeið?? Væri ekki á móti að vita það ef eitthvað klikkar hjá honum Tóta hehe :)
ca ein og hálf helgi í versló
Góða kvöldið.
Datt bara í hug að henda inn einni færslu áður en ég fer að sofa því klukkið er ekkert svo margt. En það helsta í fréttum er að ég er búin að bóka far til Svíþjóðar og fer 16. ágúst og svo komum við Tóti heim 28 ágúst, ohh hvað mér hlakkar til að hitta þessa elsku!!
Svo verður maður bara ein heima um helgina og það er bara fínt að slaka aðeins á í mínum heimi hehe. En síðustu helgi fór ég til Sandgerðis og váá hvað það var gaman að sjá alla aftur, byrjaði bara á því að hanga með bestu systur. Fékk humar í kvöldmat og hann bregst aldrei!! fæ bara vatn í munninn að segja frá þessu. Svo seina um kvöldið þá fór ég í party til Fannson og partyin hjá honum eru alltaf jafn æðisleg!! þar kemst maður í alvöru party takk fyrir og váá hvað það var æðislegt að sjá alla sem maður var ekki búin að sjá lengi!! Svo á sunnudagin ákvað systir min að taka til í fataskápnum sínum og hún ákvað að henda fullt af flottum fötum mér til miklar ánægju og ég endaði með að koma með FULLAN STÓRAN POKA af fötum
takk Vala mín, þu er best ![]()
Svo styttist alltaf í versló og mér hlakkar ekkert smá til að sjá alla á Akureyri aftur, var að komast að því að skímó er á sun en ég var búin að ákveða að ég ætlaði ekki að djamma á sun og þá er það bara svo týpist að skemmtilegasta hljómsveitin er þá
En alla vega þá ætla ég að taka eitt djamm með henni Völu minni og var líka búin að tala við Rósu um að við ætluðum að gera okkur að smá fíflum hehe
Rósa.. hvenar ert þú að spila??
Jæja ég er byrjuð að geyspa þannig að ég ætla að skella mér í háttinn
p.s. það er komin ný skoðunarkönnun, og kommenta svo!! annars fer ég að hætta að blogga!!
Hvađ er ađ ske... annađ bloggiđ mitt á 2 dögum
Sakna þín Tóti og takk fyrir að vera til
Er ég lélegasti bloggari ever??
En á laugardaginn var brúðkaupið hjá systur minni og mág... ekkert smá flott.. ó mæ gad!! Í kirkjunni var ég byrjuð að tárast yfir fyrsta laginu og ég var farin að halda að ég mundi vera hágrenjandi í endan en sem betur fer endaði það ekki þannig!! Þetta var fallegasta brúðkaup sem ég hef farið í!! Eftir brúðkaupið þá fórum ég og Andrea að skreyta svítuna á hótelinu sem vala og Elfar gistu á.. vona að ég hafi staðið mig þótt ég hafði gleymt kertum
Svo fékk Tóti að hitta systir mina á sunnudaginn og það voru víst bara allir heima hjá henni þegar ég kom að ná í bílinn þannig að hann hitti alla fjöldskylduna
En um helgina er eg bara að pæla að fara til Sandgerðis og gera eitthvað skemmtilegt með systur minni og fara allavega í heimsókn til Ellu og Hjördísar, þetta gengur ekki legnur!! Allt of langt síðan ég sá Hjördísi! og svo kemur Andrea vonandi suður helgina eftir það og svo er bara versló helgina eftir það
Held að þetta sé komið nóg í bili, þanngað til næst people
Ása Sif
Bara fyrir ţig Helga mín
En á sunnudaginn tók ég því bara rólega og man mjög lítið eftir því sem ég gerði
En þegar ég kom til Rvk ætluðum ég og Tóti að fara í kúluna en við komum þegar það var búið að loka þannig við fórum bara á þriðjudagin, og váá hvað þetta var gaman. Ég var nærðum því hætt við en sem betur fer fór ég... ég var örugglega orðin hvít í framan af hræðslu hehe
Svo á morgun er brúðkaupið hjá systur minni og ég er komin með smá í magan!! hlakkar alveg rosalega til
En One tree hill er byrjað og öll athyglin mín er komin þanngað... þanngað til næst
Ása Sif
Komin til Akureyrar
Þessi vika var bara annsi fljót að líða og komin helgi. En það sem ég gerði í vikunni var ósköp lítið frá mán til mið en á fimmtudaginn þá mætti ég fyrr í vinnuna og slepti ræktinni í staðin. Dagurinn var ótrúlega fljótur að líða. Um kvöldið fórum ég og Tóti á leikinn, Leiknir - Keflavík og hann endaði ekki vel!! En svo ákvöðum við að fara í tívólíið
Ætla að segja þetta gott í bili og fara að vekja Andreu og koma okkur í ræktina
bæbæ
Blessuđ sé minning ţín elsku Sigrún
Fór í afmæli til frænda minns á föstudaginn og var ekkert smá gaman! Vorum að djamma inni í einhverri hlöðu og í fyrstu var ekkert voðalega góð lykt en hun fór fljótlega eftir að ég fékk mér bjór. Svo var haldið niðri bæ og stefnan var tekin á Oliver og þar var bara fínt.. ég skemmti mér allavega konunglega vel! Svo þegar það var búið að loka þá fórum ég, Ási, Tommi og Sævar heim til okkar Ása og ætluðum að halda áfram en svo urðu allir bara allt í einu þreyttir og allir fóru að sofa. Vaknaði á laugardaginn um 12 leytið og fann ekki fyrir þynnku eins og sumir heheLangar að votta öllum þeim sem þekktu hana samhúð mína.
Loksins komin međ neglur!!
Asa Sif
P.s. var að gera svona vinir mínir, en er bara búin með fá. hinir koma seinna